V E Ð R i Ð

  • The WeatherPixie:

Bókin

Skólabókin

Tuesday, February 13, 2007

Að lokum...

Undanfarið hefur bloggmojoið ekki verið upp á marga fiska. Það er eitthvað sem passar ekki, eitthvað sem virkar einhvern veginn ekki. Ég veit ekki af hverju. Þess vegna hef ég ákveðið að hætta að blogga á þessari síðu og byrja upp á nýtt.

Ég hef haft ofsalega gaman af því að hafa þessa síðu til að tjá mig um heiminn eins og ég sé hann, uppátæki og fjölskyldu og skrýtna hluti á internetinu og í henni veröld. Þó er mál að linni.

Ég ætla að blogga á ensku og ég ætla að blogga um aðra hluti. Það ætla ég að gera hérna.

Yfir og út.

Víraði álfurinn.

Tuesday, February 06, 2007

Lotus Professional

Þegar ég var í jóga hjá Guðjóni Bergmann skemmti ég mér dálítið yfir ítarlegum leiðbeiningum sem finna mátti inni á kvennaklósettinu og tóku strangt fram að EKKI MÆTTI HENDA HANDÞURRKUM Í KLÓSETTIÐ - það myndi stíflast. Síðan eru liðin fimm ár og jógaferli mínum lokið í bili. Hins vegar hef ég á þessum fimm árum þónokkuð oft orðið vör við miða á salernum víðs vegar um bæinn sem vara við því að handþurrkum sé hent í klósettið. Nú síðast hér á súpersvölum skrifstofum CCP. Ég hef tekið eftir mynstri, en allar eru hættulegu handþurrkurnar af gerðinni Lotus Professional. Þá spyr ég: "Hvers vegna halda menn áfram að kaupa þessa bráðstíflandi tegund? Væri ekki einfaldara að kaupa eitthvað sem stíflar ekki?"

Þessi pæling bliknar þó í samanburði við nýjustu fréttir, en Oddur Máni Malmberg, fimmtán ára frændi minn og fótboltasnillingur, hefur verið valinn í unglingalandsliðshópinn. Til hamingju!!!

Thursday, February 01, 2007

Hmmm...

Smar_3  

Af mbl.is

Ennþá sár

Úff. Tveimur dögum eftir handboltaleikinn mikla og mér líður ennþá eins og ég hafi persónulega klúðrað einhverju. Vaknaði nóttina eftir leikinn við það að ég var að velta því fyrir mér hvernig í ósköpunum Danir hefðu náð þessu síðasta marki og hvort það væri í alvöru þannig að við hefðum ekki komist áfram.

En ég held að ég hafi sjaldan séð jafnskemmtilegan handbolta og á þessu móti. Leikurinn á móti Frökkum og leikurinn á móti Dönum voru einhverjir þeir mest spennandi sem ég hef nokkurn tíma séð og ég get ekki annað en verið sátt.

Svo er meiri handbolti í dag - við verðum þá bara að taka 5. sætið.

Friday, January 26, 2007

Lífið...

...er gott.

Undanfarnar vikur hefur fátt komist að annað en vinnan, nördismi og fjölskyldumál. Afi er búinn að vera veikur og það hefur fengið mig til að hugsa.

Afi og amma í Hafnarfirði hafa verið stofnun í mínu lífi svo lengi sem ég man. Þegar ég var lítill nýlæs púki sat ég oftar en ekki í sófanum þeirra með Morgan Kane, Tom Swift eða Horfna góðhesta og drakk í mig síðu eftir síðu.

Mikið sakna ég þess að lesa eins og ég gerði þá.

Þegar ég gisti hjá þeim um helgar fórum við amma saman með bænirnar og stundum skreið ég upp í til þeirra þegar ég vildi ekki vera ein. Um daginn lágum við svo aftur í þessu rúmi, ég, afi og amma þegar afi kom stuttlega heim af spítalanum. Þá voru hlutverkin ekki eins skýr og fyrir rúmum tuttugu árum. Það var sárt en samt svo gott.

Þegar minn hestakonuferill hófst um fimm ára aldurinn var amma að hætta að fara á bak. Þá fórum við afi á Mósa og Glóa, sem hétu reyndar Faxi og Glófaxi, endalausa reiðtúra um nágrenni Hafnarfjarðar þar sem mér var kennt að umgangast skepnur og náttúruna af virðingu. Ég vildi að ég hefði tekið betur eftir.

Árin líða og elli kerling lætur ekki að sér hæða. Hún hefur læst klónum í afa og ömmu og hægt og rólega tekur hún þau frá mér. Dag frá degi eldast þau og þurfa meira á okkur afkomendunum að halda.Mér finnst það erfitt og sárt en mér finnst gott að vera til staðar.

Þau eiga ekkert annað skilið.

Wednesday, January 17, 2007

Miðvikudagsmorgunn...

... og víraði álfurinn er, ásamt góðum hópi vinnufélaga, á leið til Atlanta að heimsækja hvítu úlfana. Ekki slæmt það.

Fyrstu vikur ársins hektískar og afi álfsins liggur á spítala. Það hreyfir við álfahjartanu og hrærir í álfahausnum enda einstakt eintak þar. Maðurinn sem kenndi mér að "maður verður að gera fleira en gott þykir" og "það á ekki að leggja stein í götu annarra". Hvort tveggja ætla ég alltaf að muna.

Hjálmar í eyrunum og nóg af vinnu í inboxinu. Þannig er lífið gott.

Tuesday, January 02, 2007

Gleðilegt ár

Jájá - þá er komið 2007. Hvert fer allur þessi tími - og hvernig stendur á því að ég verði þrítug á næsta ári. Er ekki verið að svindla?

Jólin búin að vera ljúf, áramótin skemmtileg og nú er komið að því að hysja upp um sig buxurnar og vera dugleg að vinna.

Víraði álfurinn og HMM hafa gert semiáramótaheit sem gengur út á heilsusamlegra líferni og meiri svefn. Það verður gaman að sjá hvernig það gengur...

Thursday, December 21, 2006

Meiri forræðishyggju - já takk

220pxmao_bookHver kannast ekki við að vera að verða batteríslaus annars staðar en heima hjá sér og spyrja: "áttu xxx hleðslutæki?" Og ef xxx er Nokia og síminn þinn er af algengri tegund gætirðu verið heppinn og fengið smá juice.

Líkurnar eru sumsé frekar á móti heldur en með. Í Kína nenna menn þessu bulli ekki lengur og ætla að hafa eitt ríkishleðslutæki fyrir farsíma. Á venjulegum degi væri ég varla hrifin af hugmyndinni, svona upp á prinsippið, en í dag er ég illa sofin og pirruð og sé svo gjörsamlega kostina sem eru margfalt fleiri en gallarnir. Nema að hugsað sé út frá framleiðendum hleðslutækja.

Næst sting ég upp á ríkishleðslutækinu, græjunni sem getur hlaðið gemsann, lappann, DS lite, psp, myndavélina og ipodinn. Koma svo!

Thursday, December 14, 2006

Clueless og óskipulögð

Einhverra hluta vegna er ég algjörlega sammála um að ég sé að missa af internetinu.

Sami rúnturinn, 70% blogg, 30% fréttir, er farinn daglega og fátt nýtt dettur inn. Ég er enn í því að sumar síður eru í bookmarks og aðrar man ég bara og hef t.a.m. ekki nýtt mér RSS feed af neinu viti. Að sama skapi er ég viss um að ég gæti skipulagt tíma minn betur og verið afkastameiri, ef ég bara vissi hvernig...

Þannig að, þið vinir mínir sem nýtið ykkur feedin og lumið á góðri tímastjórnunartækni megið endilega deila leyndarmálum ykkar með mér í kommentakerfinu. Það væri mjög vel þegið. Sömuleiðis ef þið vitið um fréttasíður eða blogg sem mér sem tölvuleikjaframleiðanda væri óhollt að missa af.

Hvernig finnst ykkur svo nýja lúkkið? Ég er ekki alveg nógu ánægð með það en það var kominn tími á breytingar... Ef einhver er klár að layoutera blogg og langar að eiga inni hjá mér greiða má sá hinn sami endilega gefa sig fram.

P.s. - ég á núna fallegasta tæki í heimi og enga peninga.

Saturday, December 09, 2006

Um síma

Ég er lítið tækjadýr. Litlir, silfurlitaðir hlutir með tökkum og ljósum geta gert mig alveg vitlausa. Dagur í Kringlunni í fataleit er martröð, dagur í Kringlunni í tækjaleit er skemmtun. Þannig er það bara.

Núna ætla ég að blogga um símana mína. Ef þú hefur ekki áhuga geturðu hætt að lesa hér.

Gsm19922002siemens_1 Sími #1 - Fyrsti farsíminn minn var Siemens sími hvers gerð ég man ekki. Sími #2 á myndinni hér við hliðina er svipaður honum. Bróðir minn svindlaði honum inn á mig þegar hann ákvað að fá sér Nokia bananasíma. Árið var 1997 og ég bjó í Kaupmannahöfn og átti gsm síma. Það voru góðir dagar. Þessi sími var álíka stór og meðalmúrsteinn og hann þjáðist af óheppilegu sambandsleysi. Ég var ein af ca. 10% Íslendinga sem átti gemsa og ég var svooooo töff.

Nokia1610_1 Sími #2 - Nokia 1610. Hann var nýr, hann var ódýr, ég var blankur námsmaður. Ég skammaðist mín reyndar dálítið fyrir hann enda áttu allir sem voru alvöru fólk árið 1998 Nokia 5110 og í honum var Snake. Ohhh....

Nokia_3210 Sími #3 - Nokia 3210 var fyrsti síminn sem ég girntist lengi áður en ég keypti hann. Ég var að vinna hjá reykjavik.com með fullt af tækjanördum og mig minnir að ég hafi getað keypt hann í gegnum vinnuna. Loksins átti ég þá síma með Snake. Nóttina fyrir prófið mitt í líkindafræði og tölfræði setti ég snake metið. Ótrúlegt hvað símaleikir eru freistandi í lærdómi. Þessi sími olli mér hins vegar talsverðum vonbrigðum og þess vegna skipti ég honum út fyrir ...

Nokia3310_1 Sími #4 - Nokia 3310. Árið var 2001 og ég bjó í Danmörku hjá mömmu. Síminn sem ég átti var ekki að gera sig og mér til mikillar heppni var ég að vinna með stúlku sem átti 3310 en vildi 3110. Við skiptum og ég fékk nýjan síma. Hann var þó ekki mér sérstaklega að skapi og um leið og ég fékk vilyrði fyrir vinnu hjá Delta sem nýútskrifaður verkfræðingur keypti ég mér nýjan dýran og fínan síma, þann besta sem ég hef átt hingað til.

Nokia65101_1 Sími #5 - Ég græt þennan síma ennþá. Fegurðin, notagildið og blái skjárinn fóru alveg með mig. Ég borgaði 40000 krónur fyrir hann árið 2002, á sama tíma og ég keypti Bismark á raðgreiðslum og ég elskaði þá báða þó Bismark hafi aðeins haft vinninginn. Eftir að hafa rispað kampavínslitað hulstrið keypti ég mér rautt hulstur og hann varð ennþá fegurri. Á bleika daginn sumarið 2003 týndi ég honum á djamminu og síðan þá hef ég reynt að kaupa hann á e-bay, hringt í Hátækni, Símann og Vodafone til að reyna að hafa upp á honum og fengið vel tengda menn í upplýsingatæknigeiranum til að reyna að finna svona fyrir mig. Nú er ég með lead á einn...

6100noflash Sími #6 - Nokia 6100. Hræðileg vonbrigði. Dýr, nettur, frekar vel hannaður en þjáðist bara fyrir samanburðinn við forvera sinn. Átti hann lengi, eða í rúm tvö ár, en varð aldrei sátt við hann. Sá sími endaði ævina í höndum HMM eftir að vera orðinn mállaus og lamaður. Ég ætla að skrúfa hann í sundur og fikta í honum á næstu dögum.

K750i Sími #7 - Sony Ericson k750i. Frábær myndavél og flott hönnun. Valdi hann þegar ég mátti velja mér síma þegar ég byrjaði hjá Högum. Ég og Jón Ellert fórum í nokkrar búðir og ég endaði á að velja þennan eftir að hafa velt fyrir mér hvað í #8%$ hefði komið fyrir hönnunardeildina hjá frændum mínum í Nokia. Þetta var fyrsti síminn frá því ég átti Siemens hlunkinn í upphafi ferilsins sem ekki var af finnskum uppruna. Sony stóðu sig vel til að byrja með, en síðan bilaði myndavélin og þá hætti ég að elska hann. Þá var ég líka farin að renna hýru auga til síma sem gerðu meira... Fína fólkið í vinnuni átti Qtek og mig langaði líka.

Qtek_8310_200x200 Sími #8 - Qtek 8310. Frábær græja. Lítill nettur og kraftmikill. Hver vill ekki getað Googlað einhverja vitleysu klukkan þrjú um nótt á Kaffibarnum? Algjör snilld að geta fengið tölvupóst í símann, skoðað atthachment, tekið myndir og leikið sér. Þessi græja var statussymbol og top of the line.

61035 Sími #10 - Nokia 6103. Línusíminn er rauður og hann er samlokusími, þrátt fyrir að ég hafi einhvern tímann ákveðið að slík tæki væru asnaleg og ekki fyrir mig. Hann kostaði ekki svo mikið og var keyptur vegna þess að batteríið var hlaðið og álfurinn var á hraðferð. Stendur sig nokkuð vel og gerir allt sem hann á að gera. Ég saknaði þess fyrst að fá ekki tölvupóstinn í símann, en m.v. magnið af pósti sem ég fæ þessa dagana er það líklega bara fínt. Myndavélin er svo sem ekkert til að hrópa húrra fyrir og alls ekki á par við nýja Sony Ericson símann sem ég er pínulítið að daðra við í huganum þessa dagana. Sá sími er sá fyrsti frá SE sem hefur fengið  að bera Cybershot brandið. But I digress...

Monday, December 04, 2006

Crazy

Allt að gerast og enginn tími til að blogga.

Matti sætasti átti afmæli á föstudaginn og af því tilefni var efnt til surprise afmælisveislu fyrir hann á föstudagskvöldið. Álfurinn þurfti af því tilefni að halda pókerfeisi í nokkra daga og sökum upptekni og sveimhugni fórst honum það afspyrnuvel úr hendi.

Fyrst var farið með afmælisbarnið á Vín og Skel þar sem snæddir voru sjávarréttir og drukkið hvítvín. Á sama tíma voru vinir afmælisdrengsins og velunnarar í óðaönn að skreyta stóra kassann og bera inn veigar. Þegar skötuhjúin mættu svo til síns heima höfðu gestirnir falið sig og görguðu síðan Sörprææææs! í kór. Svipurinn á HMM var afar kómískur svo ekki sé meira sagt.

Hófst þar með afmælisdjamm með stæl sem lauk ekki fyrr en seint næsta morgun. Kvöldið eftir var svo djamm endurtekið í afmælisveislu Arend, singaporíska þjóðverjans sem vinnur hjá CCP og er mikill snillingur.

Svo kom kreisí mánudagur í vinnunni og allt að gerast og á morgun er ég að fara til Lyon á Game Connection. Gaman gaman.

Kem aftur á föstudaginn.

Tuesday, November 28, 2006

iTALK . Apple Cell Phone Spec Commercial (good quality)

Sweet græja. Hver pant gefa mér?

Wednesday, November 22, 2006

To mac or not to mac...

060324_imac_neuKæru lesendur.

Víraði álfurinn er angistarfullur og kvíðinn, enda stendur hann frammi fyrir erfiðri ákvörðun.

Á hann að fjárfesta í 24" iMac, fallegasta tæki á jörðunni, til þess að nota sem tölvu, sjónvarp og græjur? Eða á hann að fjárfesta í sjónvarpi og græjum til sömu nota?

Sölumaðurinn fullyrðir að með Intel dual core örgjörvanum sé piece of cake að keyra XP á vélinni, auk þess sem sjónvarpsmóttaka með EyeTV sé barnaleikur. Hmmm...

Sama setup með PC, þ.e.a.s. media center pælingin er vissulega líka möguleg, en sökum reynsluleysis við að setja saman vélar er víraði álfurinn mun minna spenntur fyrir þeim möguleika. Þar fyrir utan hefur makkinn óneitanlega útlitið með sér.

Græjunördar þarna úti - hvað finnst ykkur?

Saturday, November 18, 2006

Heilahræra í Stokkhólmi

Image027Á þessari mynd (sem tekin er með nýja fallega línusímanum) sjást tveir holir klakar fullir af vodka. Hún er tekin á Absolut ísbarnum sem finna má í höfuðstað Svíþjóðar. Þar hefur víraði álfurinn alið manninn frá því á miðvikudaginn og numið verkefnastjórnun.

Myndin er við hæfi því einn fyrirlesturinn var einmitt um nýlega markaðsherferð Absolut í samstarfi við Lenny Kravitz. Súpertöff fyrirlestur sem ofursvöl sænsk stúlka á mínum aldri hélt um hvernig unnið er hjá þessum uppáhaldsvodkaframleiðanda mínum. Hún var týpan í svarta pilsinu, stígvélunum og rúllukragabol með týpugleraugu sem ég hef alltaf dáðst svo að. Í lok fyrirlestrar skundaði ég í búð og keypti mér dýrustu svörtu rúllukragapeysuna sem fannst í Stokkhólmi.

Hér var líka haldinn fyrirlestur um samvinnu milli sænsku geimferðastofnunarinnar, sem einmitt sendi könnunarfar til tunglsins í fyrra, við ESA, evrópsku geimferðastofnunina. Þá gladdist álfurinn ógurlega, enda var fyrirlesarinn enginn annar en Peter eitthvað, verkefnastjóri ársins í Svíþjóð í fyrra og verkfræðingur með helling af people skills, en það er einmitt sorglega sjaldgæf blanda.

Ráðstefnugestir voru örlítið penni en Fanfest gestirnir í síðustu viku og til að byrja með leist mér ekki á blikuna og hélt ég ætti í vændum leiðinlega sænska daga. Annað kom þó á daginn, fyrirlestrarnir voru margir mjög góðir og samferðamenn mínir á ráðstefnunni hið indælasta fólk.

Stokkhólmur er falleg, þrátt fyrir að ég hafi ekki séð mikið af henni, enda hefur seinni hluti laugardags verið eini frítíminn sem ég hef átt. Honum var varið í stutt rölt um Gamla Stan, þar sem heimsóttar voru tvær nördabúðir. Þar keypti álfurinn Game of Thrones boardgame ið og hvíslaði feimnislega að afgreiðslumanni verslunarinnar að hann væri að vinna með White Wolf. Hann var því miður ekki suitably impressed...

Nú er förinni aftur heitið á Gamla Stan í síðasta kvöldverð ferðarinnar. Næsta ferð er í bígerð og þá á vinnuvegum. Hausinn er fullur af hugmyndum og to do listinn er langur. Ég er komin heim, þó ég sé úti...

Tuesday, November 14, 2006

28 ára og komin heim...

Úff - undanfarnar vikur eru búnar að vera algjört rugl. Álfurinn hefur:

  • Hætt störfum hjá Högum
  • Útbúið próf í verkefnastjórnun
  • Sinnt veikum afa af bestu getu
  • Leiðrétt lyfjaskammt á spítala
  • Hafið störf hjá CCP
  • Tekið þátt í Fanfest 2006*

Vika liðin af nýju vinnunni og hún er frábær. Fullt af frábæru fólki, fullt af dóti til að læra og fullt af spennandi hlutum. Aldrei datt mér í hug að það að lesa Snowcrash myndi nýtast mér í starfi og hvað þá að ég myndi drekka kampavín klukkan sex um morgun með mönnunum sem bera ábyrgð á World of Darkness.

Álfurinn á svo afmæli í dag og fer til Stokkhólms á morgun á Nordnet 2006.

Íha!

*Roskilde hvað?

Friday, November 03, 2006

Yes! Loksins er ég komin á youtube

Hér er undirrituð í félagsskap góðra manna að lýsa yfir stuðningi við Bryndísi, tæknivæddasta frambjóðandann í prófkjörinu.

Ég hef aldrei tekið eftir þessu áður, en hér sést svo ekki verður um villst að ég er að verða þrítug...

KJÓSA BRYNDÍSI!

Tuesday, October 24, 2006

Good old fashioned manual labour

Ég er þekkingarstarfsmaður sem les tölvupóstinn á kvöldin uppi í sófa á milli þess sem ég blogga, undirbý kennslu næsta dags eða læri. Þegar ég ligg með höfuðið á koddanum á kvöldin synda alls kyns hugsanir um höfuðið á mér og þær snúast um allt sem er að gerast í lífinu þá stundina.

Þegar ég sit við skrifborðið mitt í vinnunni er ég að vinna. En ég ætla hvorki að reyna að ljúga því að sjálfri mér né ykkur að það sé það eina sem ég er að gera. Ég er multitasking tuttugustuogfyrstualdarbarn og get ekki dregið skýrar línur milli vinnu og frítíma.

Ef þú, lesandi góður, ert eins og ég, þá kannastu við dagana þar sem þú kemur engu í verk. Þar sem þú hefur hvert verkið á fætur öðru, en ekkert gerist. Engir tölvupóstar eru sendir, engar skýrslur skrifaðar, engar upplýsingar meltar eða þeim miðlað. Þú manst meira að segja ekki hvað þú last af skemmtilegu bloggi...

Á þessum dögum mæli ég með vinnu.

Ekki þekkingarstarfsmannsútgáfunni af vinnu sem er óáþreifanleg - heldur gamaldagsvinnu með höndunum. Á föstudaginn kemur vinn ég minn síðasta dag hjá Högum. Þess vegna hafði ég, þegar ég var ekki búin að afkasta neinu, en byrja á mörgu um hádegisbil, ærna ástæðu til þess að tæta fullt af skjölum, pakka öðrum í kassa, sortera, bera, mása og svitna. Og sjá, einum og hálfum tíma síðar er allt tilbúið í kassa, það er vond lykt af mér og ég sé árangur erfiðisins.

Thursday, October 19, 2006

Eftirsturtuknús

Nú ætla ég að gefa lesendum mínum uppskrift að góðri byrjun á hverjum degi.

Eftirsturtuknús:

  • Ein sturta
  • Ein nývöknuð stúlka
  • Einn sofandi strákur
  • Hlýtt rúm

Stillið sturtuna á þægilegan hita. Farið undir vatnið og þvoið andlit, hár og líkama. Skrúfið fyrir vatnið. Þurrkið líkama og vefjið handklæðinu um hárið. Skríðið upp í hlýja rúmið til sofandi stráksins og vekið hann með knúsi. Knúsið þarf að lágmarki að vera ein mínúta, en hámarksárangur næst með fimm mínútum. Farið svo brosandi inn í daginn.

Tuesday, October 17, 2006

Á fullu

Nú eru umhleypingar í lífi álfsins. Í dag hefur hann afrekað að senda lækni heim til afa síns og ömmu, fara á þrjá fundi, græja stíflueyðingarmann til að laga stíflu í stóra kassanum og taka á móti hamingjuóskum.

Stjörnuspáin er enda eitthvað á þá leit að þó sporðdrekinn eigi sömu 24 tímana og allir aðrir, líti þeir stundum út eins og 36. Dagurinn í dag er búinn að vera þannig.

Hamingjuóskirnar eru vegna yfirvofandi starfsloka álfsins sem vinnufélögunum voru tilkynnt í gær.

Innan skamms hefst nýr kafli í atvinnusögunni, en þá hef ég störf hjá súpersvala ccp : )

Monday, October 09, 2006

Stelpan sem fær allt sem hún vill

Fyrir einhverju síðan bloggaði ég um leynihugsanir sem vildu út og fyrir stuttu um draumana sem maður ætti að elta, hugsanlega bara til að drepa þá.

Ég er stelpan sem er fædd undir heillastjörnu og stelpan sem fær allt sem hún vill.

Í dag fékk ég frábærar fréttir og prufukeyrði Mini Cooper, draumabílinn minn. Ég borðaði líka ofsagott sushi á Maru og naut kvöldsins með góðum vinum.

Bryndís Ísfold, góðvinkona mín, er að bjóða sig fram í sjötta sæti Samfylkingarinnar í komandi prófkjöri og mér er alveg sama hvort þið eruð rauð eða blá, græn eða gul, þessi stúlka á erindi á þing. Hún er með kosningamiðstöð á Laugavegi 35 þar sem þið getið rætt við hana og kynnt ykkur stefnumálin hennar. Heimasíðan hennar er hér.

Að gefnu tilefni!

Þegar ég og þú gerum samkomulag og þú segist ætla að gera eitthvað fyrir mig, en hættir við af því þér mislíkar eitthvað sem ég geri, þá er sjálfsögð kurteisi að þú látir mig vita!

Annað er bara ekki pro...

Friday, October 06, 2006

Besta Birna í heimi...

á afmæli í dag.

Til hamingju með daginn sæta mín. Sakna þín!

Thursday, October 05, 2006

Speki móður

"Eltu drauminn, þó það sé ekki til annars en að drepa hann. Allt annað er uppgjöf."

Hún veit hvað hún syngur, hún Herta.

Tuesday, October 03, 2006

Bloggið sem birtist aldrei

Undanfarið hef ég verið afspyrnudugleg að blogga, í það minnsta í höfðinu á mér... Þetta óbirta blogg, sem á tuttugustu öldinni hefði kannski kallast hugsanir, hefur ekki haft dug í sér til að koma sér sjálft á upplýsingaofurhraðbrautina og er það miður.

Tvær áhugaverðar fréttir á netmogganum gripu athyglina og skemmtu mér í vikunni.

Þessi vegna þess að ef ég væri ekki Lína vildi ég vera þessi kona. Fyrsta geimferðakonan, hvorki meira né minna. Hversu svalt að skrifast þannig í sögubækurnar?

Og svo skemmtilegasta fyrirsögn vikunnar: Óákveðinn greinir fundinn á tunglinu. Ég leyfði mér að velta fyrir mér hvort -inn, -an eða -ið hefðu stungið óheppna geimfara af en áttaði mig svo á fávísi minni þegar ég fattaði að þar væri um ákveðna greina að ræða. Neil Armstrong sagði sumsé "...a small step for a man..." Þá er það ljóst.

Stóri kassinn orðinn svakafínn með nýjum sófa og nýjum skenk, myndum á veggjum og tilteknu svefnherbergi. Íbúar kassans eru afar ánægðir með það og munu jafnvel halda innflutningspartý á næstunni. Enda kannski ekki seinna vænna eftir hálfsárs búsetu.

Wednesday, September 20, 2006

Næstmesti töffaraskapur í heimi...

... er að keppa í verkefnastjórnun.

Ekki sammála? Believe you me, það er svalt.

Mesti töffaraskapur í heimi er hins vegar að vinna keppnina og fá ferð til Kína í vinning!

Til hamingju Júlía Rós!

My Photo

Diskurinn

February 2007

Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28      
Blog powered by TypePad