Nú eru umhleypingar í lífi álfsins. Í dag hefur hann afrekað að senda lækni heim til afa síns og ömmu, fara á þrjá fundi, græja stíflueyðingarmann til að laga stíflu í stóra kassanum og taka á móti hamingjuóskum.
Stjörnuspáin er enda eitthvað á þá leit að þó sporðdrekinn eigi sömu 24 tímana og allir aðrir, líti þeir stundum út eins og 36. Dagurinn í dag er búinn að vera þannig.
Hamingjuóskirnar eru vegna yfirvofandi starfsloka álfsins sem vinnufélögunum voru tilkynnt í gær.
Innan skamms hefst nýr kafli í atvinnusögunni, en þá hef ég störf hjá súpersvala ccp : )
Gó Lína! :-)
Posted by: Bjarni Rúnar | Wednesday, October 18, 2006 at 06:32
Bara dásamlegt! Enn og aftur til hamingju!
Posted by: Júlía Rós | Wednesday, October 18, 2006 at 12:45
Súperkúl! Til lukku Lína mín!
Posted by: Ásdís Rósa | Wednesday, October 18, 2006 at 13:17
Til hamingju með nýju nördavinnuna. Þetta eru meiriháttar fréttir.
Posted by: Urður | Wednesday, October 18, 2006 at 14:37
TIl hamingju með nýja djobbið sæta mín.
En mér leikur forvitni á að heyra meira um lækninn sem fór til ömmu sinnar og afa??? :-/
Posted by: Ragnhildur Thordardottir | Wednesday, October 18, 2006 at 21:30
Takk fyrir stúlkur mínar :)
Læknirinn fór ekkert til ömmu sinnar og afa -- hann fór til ömmu minnar og afa... Engin smáþjónusta þar.
Posted by: Lína | Thursday, October 19, 2006 at 15:01
Ég meinti auðvitað stúlkur mínar og Bjarni ;)
Posted by: Lína | Thursday, October 19, 2006 at 15:01