Úff - undanfarnar vikur eru búnar að vera algjört rugl. Álfurinn hefur:
- Hætt störfum hjá Högum
- Útbúið próf í verkefnastjórnun
- Sinnt veikum afa af bestu getu
- Leiðrétt lyfjaskammt á spítala
- Hafið störf hjá CCP
- Tekið þátt í Fanfest 2006*
Vika liðin af nýju vinnunni og hún er frábær. Fullt af frábæru fólki, fullt af dóti til að læra og fullt af spennandi hlutum. Aldrei datt mér í hug að það að lesa Snowcrash myndi nýtast mér í starfi og hvað þá að ég myndi drekka kampavín klukkan sex um morgun með mönnunum sem bera ábyrgð á World of Darkness.
Álfurinn á svo afmæli í dag og fer til Stokkhólms á morgun á Nordnet 2006.
Íha!
*Roskilde hvað?
Til hamingju með afmælið og skemmtu þér vel í Stokkhólmi.
Posted by: Urður | Tuesday, November 14, 2006 at 10:32
til hamingju með afmælið!!!
Ótrúlega heppilegt að fá borgað fyrir að vera nörd:)
Posted by: Silja | Tuesday, November 14, 2006 at 19:03
Til hamingju með afmælið og nýju vinnuna og allt bara! :-)
Posted by: Bjarni Rúnar | Wednesday, November 15, 2006 at 06:55
Til hamingju með daginn :)
Posted by: Júlía Rós | Wednesday, November 15, 2006 at 12:54
Hæ hæ sæta..
Vildi bara kvitta fyrir komuna.
Vona að þú hafir það gott ;)
kv. BarbaraHafey
Posted by: BarbaraHafey | Friday, November 17, 2006 at 00:13
Takk fyrir mig góða fólk. Það er svo sannarlega ánægjulegt að vera nörd og enn ánægjulegra að fá borgað fyrir það :)
Posted by: Lína | Saturday, November 18, 2006 at 17:55
Lína...ég er alltaf eitthvað að kommenta og þau birtast aldrei! T.d. ekki afmæliskveðjan mín um daginn...þannig að..(og vonandi pósast þessi) INNILEGA TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ LÍNA MÍN!
Posted by: Ásdís Rósa | Monday, November 20, 2006 at 12:33