... að horfast í augu við þann sem þú þekktir best allra, þann sem átti alltaf að vera við hliðina á þér, þann sem einu sinni var moldin þín.
Undarlegt að átta sig á að nú hefurðu ekki hugmynd um hver hann er.
Leiðir skiljast.
David A. Vise: The Google Story
Varð að grípa þessa bók á flugvellinum í Stokkhólmi. Hún lítur vel út og mig langar gjarnan að þekkja þessa sögu. Hins vegar virkar hún svolítið mikið Hallelúja á mig...
Orson Scott Card: Speaker for the Dead
Enders Game og Lost Boys, báðar eftir sama höfund, eru einar allrabestu bækur sem ég hef lesið. Ég laumaðist inn á hótelherbergi á miðnætti í mjög skemmtilegu Actavisdjammi til að klára síðustu 30 blaðsíðurnar af Enders Game áður en ég hélt áfram að djamma. Hlakka til að komast að því hvort þessi er svona góð.
Stephen R. Covey: The Seven Habits of Highly Effective People: Restoring the Character Ethic (A Fireside Book)
Systir mín hefur tröllatrú á þessari bók og James Bond var líka aðdáandi. Er rétt byrjuð og veit ekki alveg hvernig mér líst á hana.
Steven D. Levitt: Freakonomics: A Rogue Economist Explores the Hidden Side of Everything
Einar tilvonandi samkennari minn lánaði mér hana á dögunum, enda mjög hrifinn. Pælingarnar eru skemmtilegar og hugsunin vissulega frumleg. Ég er ekki viss um að ég sé endilega sannfærð um margt sem Levitt segir en ég hef gaman af bókinni.
Carlos Ruiz Zafon: The Shadow of the Wind
Á íslensku heitir hún Skuggi vindsins og fæst í kilju í næstu bókabúð. Ljóðræn, spennandi, skemmtileg, fyndin og sorgleg. Ég gat varla lagt hana frá mér og get varla mælt nógu mikið með henni.
Joe Tidd: Managing Innovation: Integrating Technological, Market and Organizational Change
Nýsköpun í fyrirtækjum frá ýmsum vinklum. T.d. er rætt um þegar P & G fann upp cyclodextrin, notaði það í fjölda af sínum vörum og seldi fyrirtækjum sem ekki voru í samkeppni leyfi til að nýta það. Ég hef reynt að panta svoleiðis og mér finnst gaman þegar ég finn bragðið af skólanum.
« Plan kvöldsins | Main | Ofdekruð & spillt »
The comments to this entry are closed.
Sufjan Stevens : Michigan
Algjör snillingur. Sit með hann í eyrunum og hamast á lyklaborðinu í verkefni dauðans...
Sufjan Stevens : Illinois
Svo flottur. Og spilar fyrir mig í Fríkirkjunni 17. nóvember næstkomandi.
Bubble Toes
Jack Johnsson: Brushfire Fairytales
Þetta lag er snilld. Þessi diskur er snilld. Jack Johnson er snillingur. Hann syngur lög um endurvinnslu. Þau eru ekki á þessum disk samt.
Arcade Fire: Funeral
Fullt af lýsingarorðum sem kemur upp í hugann - en ég ætla að velja fallegur, hrár og sannur yfir þennan disk. Hlusta, takk!
The Magic Numbers: The Magic Numbers
Æðislegur diskur! Fékk hann í ammlisgjöf frá HMM og get ekki mælt nógu mikið með honum :)
Hæ sætan mín
Þýðir þetta það sem ég held? Líst vel á að vélin heitir Krafla og þú átt einn góðan kaffi hjá mér, koddu hvenær sem er!
Posted by: Sif | Thursday, August 17, 2006 at 07:29
Hæ sæta mín og takk fyrir kaffiboðið.
Og nei, þetta þýðir ekki það sem ég held þú haldir, heldur varð einn af draugum fortíðar á vegi mínum um daginn.
Víraði álfurinn & HMM munu hins vegar fagna því að hafa verið par í ár á laugardaginn :)
Posted by: Lína | Thursday, August 17, 2006 at 09:06
Já par í eitt ár og við fögnum því að hafa verið gift í eitt ár. Gaman að þið skilduð hafa byrjað saman eftir brúðkaupsveisluna okkar :)
Posted by: Júlía Rós | Thursday, August 17, 2006 at 20:44