Einhverra hluta vegna er ég algjörlega sammála um að ég sé að missa af internetinu.
Sami rúnturinn, 70% blogg, 30% fréttir, er farinn daglega og fátt nýtt dettur inn. Ég er enn í því að sumar síður eru í bookmarks og aðrar man ég bara og hef t.a.m. ekki nýtt mér RSS feed af neinu viti. Að sama skapi er ég viss um að ég gæti skipulagt tíma minn betur og verið afkastameiri, ef ég bara vissi hvernig...
Þannig að, þið vinir mínir sem nýtið ykkur feedin og lumið á góðri tímastjórnunartækni megið endilega deila leyndarmálum ykkar með mér í kommentakerfinu. Það væri mjög vel þegið. Sömuleiðis ef þið vitið um fréttasíður eða blogg sem mér sem tölvuleikjaframleiðanda væri óhollt að missa af.
Hvernig finnst ykkur svo nýja lúkkið? Ég er ekki alveg nógu ánægð með það en það var kominn tími á breytingar... Ef einhver er klár að layoutera blogg og langar að eiga inni hjá mér greiða má sá hinn sami endilega gefa sig fram.
P.s. - ég á núna fallegasta tæki í heimi og enga peninga.
Tímastjórnunartæknin mín er mjög einföld: ég er bara með rss feed í heimatölvunni, og ég nota hana yfirleitt bara á kvöldin þegar ég hef ekkert betra að gera. Í vinnutölvunni eru engin bookmarks, ef ég vil geyma eitthvað sem ég finn þegar ég stelst til að brása í vinnuni þá skelli ég því á del.icio.us, eða ef það er eitthvað mega spennó, þá skelli ég því á bloggið.
Varðandi útlit á bloggið, þá get ég splæst á þig útliti ef þú finnur einhvern til að css'a það og henda inn á bloggkerfið.
Posted by: Sveinbjörn | Thursday, December 14, 2006 at 21:44
Var ég búin að segja ykkur að Sveinbjörn er uppáhalds!
Takk Svenni. Þú gætir líka þurft að koma heim til mín og kenna mér á heimsins fallegasta tæki :)
Posted by: Lína | Friday, December 15, 2006 at 09:14
RSS feeding..?? Ný spagetítegund eða kvað?
Varðandi tímstjórnun: Það voru 24 tímar í sólahringnum í gær, þeir sömu 24 eru þar líka í dag og næsta víst er að þeir verði þar einnig á morgun. Af því má leiða að sólahringurinn fer ekki langt og þá tíminn sennilega ekki heldur. Því sé ég enga sérstaka ástæða til að stjórna tímanum, hann er bara þarna, eða hvað?
Lína: No hurries, no worries..!
Nýja útlitið: Ef ég á að vera alveg hreinskilin þá fannst mér gamla flottara!
...uff allt of djúpt, best að kíka á koktail hjá sjálfum Orkumálastjóra. Ætli hann sé afi íþróttaálfsins??
Posted by: vaka | Friday, December 15, 2006 at 15:21